Í leit að því sem er

Forsíða kápu bókarinnar

Hvað tökum við í arf frá foreldrum og hverju miðlum við áfram til barna okkar? Hvernig komumst við að því hvað er hvurs og hvurs er hvað? En ekki síst: hvar finnum við frið mitt í áreiti og óreiðu nútímans?

Höfundur hefur varið drjúgum tíma í þá leit á leið sinni um leikhúsið, listir, pólitík, sálarfræði, hugleiðslu og andlegt líf.

Sigurður Skúlason (f. 1946) útskrifaðist frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1967 og hefur leikið við Þjóðleikhúsið hátt á annað hundrað hlutverk auk þess að hafa starfað með fjölmörgum öðrum leikhópum og leikið í útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum. Þá hefur hann þýtt nokkur erlend leikrit.

Gegnum tíðina hefur hann leitað að svörum við spurningunni um hvar megi finna frið í áreiti og óreiðu nútímans og leið hans legið um ýmis svið samfélagsins – leikhús og listsköpun, pólitík, sálarfræði og alls kyns meðferðir, hugleiðslu og andlegt líf.

í leit að því sem er er fimmta frumsamda bók Sigurðar. Áður sendi hann frá sér ljóðabækurnar margbrotinn augasteinn (1981), ævinlega hér (1996), á leiðinni (2004), og heim aftur (2015).

Sigurður hefur einnig þýtt nokkrar bækur um andlegt líf, síðast Ný jörð – að vakna til vitundar um tilgang lífs þíns (2023) eftir Eckhart Tolle.