Innum veggi verundar
Ljóðið fylgir okkur og eins getum við fylgt ljóðinu. Það tengir okkur við gang lífsins, lætur okkur staldra við og veita eftirtekt. Einnig verða ljóð til í andakt og geta þróast inn í ókunna hugarheima. Höfundur er geðhjúkrunar- og fjölskyldufræðingur og hefur starfað sem sérfræðingur í heilbrigðiskerfinu en jafnframt kennt í bæði HÍ og HA.
Innum veggi verundar er þriðja ljóðabók Margrétar. Áður hafa komið út bækurnar Í birtingu og Við vegg tímans.