Ísguðirnir
Farsæll matvörukaupmaður finnst myrtur með hrottalegum hætti í einu af fínni sumarhúsahverfum Linköping. Lögreguforinginn Malin Fors og samstarfsfólk hennar fara með rannsókn málsins. Var kaupmaðurinn fórnarlamb fjölskyldudeilna eða var hann myrtur í pólitískum tilgangi? Eða bjó eitthvað allt annað að baki?
Smátt og smátt skýrast línur – og Malin sogast djúpt inn í heim þar sem fégræðgi virðast engin takmörk sett. Á sama tíma verða umskipti í hennar eigin lífi. Dóttir hennar er flutt aftur heim og ástarlífið er í uppnámi.
Mons Kallentoft er einn af þekktustu rithöfundum Svíþjóðar. Ritröð hans um Malin Fors hefur notið mikilla vinsælda víða um lönd. Ísguðirnir er fimmtánda bókin um Malin Fors en hinar fjórtán – Sumardauðinn, Haustfórn, Vetrarblóð, Vorlík, Fimmta árstíðin, Englar vatnsins, Sálir vindsins, Moldrok, Brennuvargar, Vítisfnykur, Böðulskossinn, Himinópið, Satanskjaftar og Villuljós – hafa selst í milljónum eintaka og verið þýddar á fjölda tungumála.