Ódysseifskviða
Ódysseifskviða fjallar um heimför og hrakningar Ódysseifs eftir Trjójustríðið, um ævintýralegar slóðir Miðjarðarhafsins og alla leið í dauðaheim Hadesar. Hún lýsir guðlegum galdrakerlingum og íðilfögrum prinsessum, framhjáhaldi guða og trygglyndi hunda, skrímslum og vofum, baráttu hetja og skúrka sem að lokum hljóta makleg málagjöld.
Sveinbjörn Egilsson þýddi en Svavar Hrafn Svavarsson annaðist útgáfuna.
Verkinu fylgja nafnaskrár og skýringar, auk korts sem sýnir hrakningar Ódysseifs um Miðjarðarhafið.