Krypplingur
Shaka er með vöðvasjúkdóm, en þótt líkamleg geta hennar sé takmörkuð þekkir hugurinn engin mörk: Hún stundar fjarnám í háskóla, birtir hispurslausar fantasíur á erótískum vefsíðum og tístir nafnlausum stóryrðum út í tómið. Einn daginn sendir hún frá sér tilboð um himinháa upphæð í skiptum fyrir sæði og hrindir þar með af stað óvæntri atburðarás.
Hárbeitt saga um konu sem krefst þess að fá að taka eigin ákvarðanir, sama hvaða afleiðingar þær kunna að hafa. Saou Ichikawa (f. 1979) hristi upp í japönskum bókmenntaheimi með djörfu skopskyni og vægðarlausri endurspeglun á fötlunarfordómum samfélagsins. Ichikawa hlaut hin virtu Akutagawa-verðlaun fyrir Kryppling, auk þess sem hún var tilnefnd til Alþjóðlegu Booker-verðlaunanna.