Kuldavélin

Forsíða kápu bókarinnar

Matti er kominn til Bjarkareyjar og hlakkar til að njóta bæjarhátíðarinnar með Hönnu Stínu, vinkonu sinni. Hann er þó varla stiginn á land þegar furðulegir atburðir eiga sér stað og fyrr en varir dragast vinirnir inn í æsispennandi kapphlaup við tímann þar sem dularfullur íssali, kuldaköst á miðju sumri og gömul leyndarmál koma við sögu.

Með hjálp vitavarðarins Hagbarðar, uppfinningakonunnar Katarínu Kristrósar, hinnar óborganlegu ömmu Lenu og hundsins Hrings þurfa Matti og Hanna Stína að treysta á hugrekki, útsjónarsemi og hvort annað til að bjarga Bjarkarey og íbúum hennar.

Kuldavélin er sjálfstætt framhald Brandarabílsins – spennandi, hlý og bráðfyndin ævintýrasaga um hugrekki, vináttu og fyrirgefningu. Hún minnir okkur á að stærstu hetjurnar eru ekki þær sem hræðast ekkert, heldur þær sem þora þrátt fyrir óttann.