Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Kúnstpása

  • Höfundur Sæunn Gísladóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Heimsborgarinn Sóley er nýútskrifaður hljómsveitarstjóri á framabraut í Leipzig sem ætlaði alls ekki að flytja strax aftur heim til Íslands. En þegar heimsfaraldur geisar og öllum tónleikahúsum Evrópu er skellt í lás samþykkir hún að koma heim og reka bókabúð afa síns sumarlangt í heillandi smábæ á hjara veraldar.

Og ef þessi óvænta kúnstpása skapaði ekki nógu mikla óreiðu í lífi Sóleyjar bæta kynnin af leiðsögumanninum Óskari sannarlega ekki úr skák.

Um miðja síðustu öld stígur unga ekkjan Sigríður af skipsfjöl í sama smábæ. Hún ætlar að opna verslun í karlaveldi með mótlætinu sem því fylgir. Hún á þó eftir að komast að því að konur eru konum bestar og að það er alltaf ljós við enda ganganna.

Kúnstpása er fyrsta skáldsaga Sæunnar Gísladóttur. Í henni fléttast saman líf og örlög tveggja ungra kvenna á ólíkum tímum. Óvænt tækifæri banka upp á og ástin kveður sér hljóðs þvert á allar fyrirætlanir.