Kvæði og laust mál

Forsíða kápu bókarinnar

Í þessari bók birtast eftirlátin frumort kvæði, ritgerðir og fyrirlestrar Benedikts.

Benedikt Einarsson var fæddur árið 1877 að Elínarhöfða á Akranesi. Hann missti báða foreldra sína barnungur en Guðmundur Sveinbjörnsson móðurbróðir hans, bóndi á Valdastöðum í Kjós, og Katrín  Jakobsdóttir kona hans fóstruðu hann í stórum barnahópi. Benedikt erfði skáldgáfu frá föður sínum en átti sér jafnframt mörg áhugamál og vítt áhugasvið sem birtist vel í þessari bók. Hann lauk kennaraprófi frá Flensborgarskóla 1904 og var orðlagður kennari þótt ævistarf hans yrði annað sem bóndi. Í þessari bók birtast eftirlátin frumort kvæði, ritgerðir og fyrirlestrar Benedikts.