Lalli Johns

Sagan öll

Forsíða kápu bókarinnar

Þessi bók Rósu er hreint ótrúleg! Hún er yfirþyrmandi, ljúf og óþægileg. Rósa skrifar sögu Lalla, söguna alla, eins og hún hafði lofað honum á dánarbeði hans. Hún efndi það loforð svo rækilega að lesandinn er lengi að jafna sig eftir lesturinn.

Augljóst er að Rósu þótti vænt um bróður hennar, jafnljóst er að hann var henni erfiður. Þetta hvort tveggja opinberast lesandanum gegnum alla frásögnina svo hún öðlast líf og fyrir vikið trúverðugleika.

Sagan er studd gögnum, opinberum heimildum stofnana eins og lögreglu og Barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Látlaus og raunsönn frásögn Rósu birtir mynd af dreng sem fékk áfellisdóm alls kerfisins fyrir að vera lesblindur og ofvirkur og fyrir vikið dæmdur fáviti af þeim sem áttu að vita betur.

Þessi einfalda og einlæga frásögn er ískaldur óvæntur næðingur, áfellisdómur yfir kerfi sem brást með skelfilegum hætti. Það er áleitin spurning hvort samfélag okkar hafi í raun komist út úr því ástandi!