Leiðin heim

Forsíða kápu bókarinnar

Einn fallegan vordag í París rennur það upp fyrir Malín að hún getur ekki lengur falið sig á bak við að vera tuttugu og eitthvað, enn að finna sig. Á yfirborðinu virðist líf hennar fullkomið. Fótboltastelpan úr Árbænum er komin á stað sem hana hefði aldrei getað dreymt um. En er lífið sem hún hefur valið sér raunverulega hennar?

Eða hefur hún verið á stöðugum hlaupum – ekki í átt að draumum sínum, heldur í burt frá gömlum sárum? Og hvað gerist þegar hún mætir draugi fortíðar, fyrstu ástinni, eftir allan þennan tíma?