Lífið er staður þar sem bannað er að lifa

Bók um geðröskun og von

Forsíða bókarinnar

Eftir tæplega þrjátíu ára leit að bata tókst Steindóri Jóhanni Erlingssyni loksins að snúa vörn í sókn í baráttu sinni við ægivald þunglyndis og kvíða. Allan þennan tíma höfðu þessar geðraskanir fylgt honum sem áleitinn skuggi. Það var ekki fyrr en hann fór að skoða þau áföll sem hann hafði orðið fyrir að honum fór að batna.

Hér fjallar Steindór á einlægan hátt um glímu sína, hvernig hann hefur leitað að haldreipi í bókmenntum og hugsuðum fyrri tíma, heimsótt geðlækna, tekið geðlyf, legið inni á geðdeildum og unnið með meðferðarhópum utan heilbrigðiskerfisins. En það var ekki fyrr en hann fór að skoða áföll í fortíðinni að bataferlið hófst.

Hér er á ferð einstök bók um mann sem þurfti að ferðast um djúpan dal lungann úr ævi sinni en hefur nú endurheimt lífið. Steindór er doktor í vísindasagnfræði og höfundur einnar bókar, auk fjölmargra fræði- og blaðagreina.