Lífskán
Ljóðsaga um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Í ljóðunum fléttast mannleg samskipti og skynjun saman við náttúruna í sterku og oft ærslafullu myndmáli. „Ljóðrænt ferðalag um mátt tungumálsins til að takast á við mótlæti, halda reisn og skilja undur hins mannlega,“ segir dómnefnd Nýræktarstyrks.
Það gustar og ég sný
höfðinu í allar þær áttir sem ég kann.
Við erum mörg gró, þó nokkrir geislagerlar, kona og mosi,
sem stefnum að því að standa hér
vistkreppuna af okkur
hitann og þurrkinn og skyndilegar breytingar
í nærumhverfi
spíra í gljúpu grjótinu
gera hrjúft grænt.