Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Liverpool

Nýr þjálfari, nýtt lið, nýir sigrar!

  • Höfundur Illugi Jökulsson
Forsíða kápu bókarinnar

Eftir skemmtileg ár undir stjórn Klopps héldu flestir að nýr þjálfari þyrfti tíma til að setja mark sitt á liðið. Það var öðru nær. Arne Slot er strax kominn með frábært meistaralið. Snillingar eins og Salah og Van Dijk hafa aldrei verið betri og nú eru komnir nýir menn eins og Rios Ngumoha, Alexander Isak og Wirtz sem gera liðið enn sterkara.

Hér er líka allt um sögu Liverpool – gamlar hetjur eins og Rush og Dalglish og fyrsta Evrópuleikinn gegn KR!

Líflegur og fróðlegur texti, flottar myndir, skemmtilegar staðreyndir!