Ljóðstafir
Sandra Bergljót Clausen, rithöfundur og skáld, gefur hér út ljóð sem hún hefur samið síðasta áratuginn. Ljóðstafir er önnur ljóðabók höfundar.
Sandra var áður fyrr í Kvæðafélagi Iðunnar og hefur unun af kveðskap. Fyrstu ljóðin litu dagsins ljós er hún var barn og síðan þá hafa þau orðið fjölmörg í allavegana útfærslum. Ljóðabókin Andlit manna kom út eftir Söndru árið 2010 og þau ljóð í öllu frjálslegri búning en í sumum ljóðum þessarar bókar styðst hún við svokallaða ljóðstafi, stuðla og höfuðstafi. Þó leyfir hún einnig frelsinu að ráða för í sínum skáldskap og því eru sum hver í öllu nútímalegri stíl og spinna hálfgerðar sögur.