Ljónið á leikvanginum

Forsíða kápu bókarinnar

Hvað gerir þú þegar óttinn lætur á sér kræla? Eins og ógnvekjandi ljón, sem mætir óboðið. Hættir þú við að gera það sem þú ætlar þér, eða finnur þú leið í gegn um óttann? Þessi fallega barnabók hjálpar fjölskyldum að takast á við erfiðar tilfinningar og áhyggjur á uppbyggilegan hátt.

Hákon ætlar að keppa í hástökki í fyrsta sinn, en lamandi kvíði verður til þess að hann flýr af hólmi. Með stuðningi og snjöllum ráðum eldri systur sinnar áttar Hákon sig á því að hann þarf ekki að losna við óttann til þess að vera hugrakkur.

Þetta er hagnýt saga sem sýnir börnum að raunverulegt hugrekki felst ekki í því að vera aldrei hræddur, heldur að láta óttann ekki stoppa sig. Sagan er sjálfstætt framhald bókarinnar Skýin í maganum og er skrifuð í samstarfi við Sterkari út í lífið.