Útgefandi: Jólaálfurinn

Barnabók byggð á ACT Skýin í maganum

Stundum skín sólin, stundum er skýjað og stundum geisar stormur innra með okkur. Með fallegri myndrænni framsetningu hjálpa höfundar börnum að skilja að allar tilfinningar eiga rétt á sér. Rétt eins og við getum ekki stjórnað veðrinu getum við ekki stjórnað því hvernig okkur líður – en við getum lært að velja hvernig við bregðumst við.