Ljós heimsins
Það er sumt í heiminum sem þarfnast frekari skýringa – eitt af því er „karlinn í tunglinu“.
Í litlu húsi, í lítilli borg, við stóran flóa, býr strákur sem á erfitt með að sofna á kvöldin. Meðan önnur börn sofa vært vakir hann. Þú hefur kannski heyrt um hann Kalla?
Dásamleg saga eftir Evu Þengilsdóttur þar sem hlýja, húmor og hugmyndaflug fléttast saman við einstakan myndheim Gerðar Steinarsdóttur.