Ljósfaðir
Jónas í Hróarsdal í Skagafirði var bóndi og yfirsetumaður, sem hafði auk þess formlegt leyfi til lækninga þótt sjálfmenntaður væri. Til hans lá straumur sjúkra, lemstraðra og þunglyndra. Viðkvæmu jafnvægi á heimilinu er raskað þegar barnabarn úr Vesturheimi ber að garði. Áhrifamikil og fróðleg.
„Jónas Jónsson. Hann eignaðist 33 börn með þremur konum. En hann var líka ljósfaðir sem hjálpaði mörg hundruð börnum í heiminn. Langalangalangafi minn.“
Í skugga trjánna, Guðrún Eva Mínervudóttir (2024)
Rúmföstum gömlum manni er Jónasi í mun að miðla þekkingu sinni til þriðju eiginkonunnar, Lilju. Hún sinnir lækningunum með honum og annast að mestu hinn misleita hóp sjúklinga, auk þess að stýra búinu. En viðkvæmu jafnvægi á heimilinu er raskað þegar barnabarn úr Vesturheimi, Jónas yngri, tvídklæddur og „myndarlegri en djöfullinn sjálfur“ kemur til dvalar í Hróarsdal – og erfiðar spurningar um tilvist, sekt og ábyrgð verða ekki lengur umflúnar.
Guðrún Eva Mínervudóttir hefur hér skrifað áhrifamikla skáldsögu sem er „fleytifull af sannleika, hundrað ára gömlum hviksögum, munnmælum, staðreyndum og söguburði“ eins og hún orðar það í eftirmála. Guðrún Eva er í fremstu röð íslenskra rithöfunda, síðasta bók hennar, Í skugga trjánna, var hlaðin lofi og varð ein mest selda bók ársins 2024.