Með höppum og glöppum

Spjallbók

Forsíða kápu bókarinnar

Þetta er síðasta spjallbók höfundar að eigin sögn. Hinar fyrri eru Mitt litla leiksvið (2017), Lítið óvísindalegt kver um leiklist (2019), Þú ert mitt sólskin (2024) og Í belg og biðu (2025). Hér er sem áður allt í belg og biðu og ekkert gert til að setja textann í bása eða mjólka með vélum.

Tilgangurinn er vitaskuld afþreying en ekki sakar ef lesendur finna einhverjar góðar meiningar á bak við.

Til eru barnabækur, unglingabækur og venjulegar bækur, en höfundur hefur ekki heyrt getið um eldrafólksbækur; kannski mætti, eftir undirtektum að dæma, kalla þessar spjallbækur svo. Þakkir frá bóka- og ferðaklúbbum, hjúkrunarheimilum, ýmsum góðgerðafélögum og svo framvegis benda til þess. En vonandi á kverið erindi við öll aldursskeið, þó að höfundur sé ekki kornungur.