Með sögu í farangrinum – Brúðarbúningurinn:

Níu fræðigreinar

Forsíða kápu bókarinnar

Greinarsafn í tilefni sýningar í Þjóðminjasafni Íslands um glæsilegan íslenskan brúðarbúning frá 18. öld sem þekktur er fyrir glæsileika, fagurt handverk og skart. Faldbúningurinn er í eigu V&A safnsins í London og var lengi talinn hafa glatast í skipsskaða.

Saga búningsins er margslungin og tengist fjölmörgum þáttum íslenskrar sögu og menningar. Í níu greinum fjalla sérfræðingar um búninginn frá ólíkum sjónarhornum; meðal annars Stefánungaættina, sögu brúðarinnar Þórunnar Stefánsdóttur, ímynd Íslands, alþjóðasamskiptum, neysluvenjum 18. aldar, textíl, handverki, skarti og menningarsögulegu samhengi á ólíkum tímum.

Bókin er ríkulega myndskreytt og forsíðuna prýðir verk Kristjönu Williams Studio, sem var unnið sérstaklega fyrir sýninguna.

Bókin kemur líka út á ensku.