Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Megir þú upplifa

  • Höfundur Bjarni Þór Pétursson
Forsíða kápu bókarinnar

Í Vesturbænum býr breyskur maður í eilífri leit að fegurð lífsins um leið og hann tekst á við persónulegan harm. Hann þráir frelsi æskunnar og hina brothættu fullkomnun sem er rétt utan seilingar. Við fylgjum honum í gegnum ferðalög, endurminningar og hjákátleg samskipti við konurnar í lífi hans.

Við fylgjumst með honum gera tilraun til að vera guðseindin í heimi sem oft virðist svo glataður.

Megir þú upplifa er óður til fegurðarinnar. Óður til borgarlífs. Óður til Evrópu. Og óður til skálds. Hún er tilraun til að milda hjörtu. Tilraun til að mála með litríkum breiðum penslum yfir gráan hversdagleika. Og tilraun til að fanga það besta sem lífið hefur upp á að bjóða.