Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Mynd & hand

Skólasaga 1939–1999

  • Höfundar Davíð Ólafsson og Arndís S. Árnadóttir
  • Ritstjórar Æsa Sigurjónsdóttir, Sumarliði R. Ísleifsson og Kristín Svava Tómasdóttir
  • Myndaritstjórn Hjálmtýr Heiðdal
Forsíða kápu bókarinnar

Sextíu ára saga Myndlista- og handíðaskóla Íslands, allt frá því að skólinn tók til starfa í fjórum geymsluherbergjum í kjallara við Hverfisgötu árið 1939 undir nafninu Handíðaskólinn og þar til hann var lagður niður samhliða stofnun Listaháskóla Íslands árið 1999.

Þegar Lúðvíg Guðmundsson stofnaði Handíðaskólann var hugsjón hans að auka verklegt nám í barnaskólum fyrir bæði pilta og stúlkur og varðveita þannig og miðla verkkunnáttu sem hann taldi að væri á undanhaldi.

Smám saman varð hlutverk skólans fjölbreyttara og lengi vel má segja að hann hafi verið margir skólar í einum. Þar hlutu kennarar menntun í handíðum og myndlist og þar sótti fjöldi barna og fullorðinna námskeið í öllu frá bókbandi og leðurvinnu til ljósmyndunar og auglýsingateiknunar. Á tímabili menntaði hann verðandi bændur og veitti fötluðum unglingum kennslu í verklegum greinum.

Síðast en ekki síst varð hann fyrsti myndlistaskóli landsins til að starfrækja dagdeild. Margir af þekktustu listamönnum þjóðarinnar lærðu og kenndu við skólann og þegar á leið var hann í framvarðasveit skapandi lista í landinu.