Myrkravald

Forsíða kápu bókarinnar

Eva Björg Ægisdóttir og Jérôme Loubry eru bæði margverðlaunuð fyrir glæpasögur sínar. Þau leggja hér saman krafta sína að undirlagi glæpasagnahátíðarinnar Quais du polar í Lyon en hana sækja yfir 100.000 manns ár hvert. Bókin kemur út samtímis á Íslandi og í Frakklandi.

Vera stefnir hraðbyri í að verða næsti borgarstjóri Reykjavíkur en póstur frá franskri blaðakonu neyðir hana til að horfast í augu við örlagaríka atburði sem áttu sér stað fyrir nálega tveimur áratugum. Veröld hennar fer á hvolf þegar blaðakonan hnígur niður í móttöku í sendiherrabústaðnum með hörmulegum afleiðingum. Skömmu síðar birtist óvænt franskur rannsóknarlögreglumaður í Reykjavík ...