Niðurskurður og dauði

Áfallasaga

Forsíða kápu bókarinnar

Í aldanna rás var sauðfjárbúskapur undirstaða íslensks samfélags og mótaði líf og afkomu þjóðarinnar. En búskapnum fylgdu áföll, svo sem eldgos og harðindi en ekki síst skæðir sauðfjársjúkdómar sem gátu á skömmum tíma ógnað afkomu heilu byggðarlaganna. Í þessari bók fjallar dr. Helgi Sigurðsson, dýralæknir og sagnfræðingur, um þessi áföll.

Fjallað er um efnið allt frá fjárkláðanum fyrri og Móðuharðindunum til bráðapestarinnar, sunnlenska fjárkláðans, karakúlsjúkdómanna og glímunnar við riðuveiki.

Niðurstöður dr. Helga sæta tíðindum. Hann færir meðal annars rök fyrir því að fyrri fjárkláðinn hafi verið veirusjúkdómur en sunnlenski fjárkláðinn bakteríusjúkdómur. Þá fjallar hann um hinn hæggenga veirusjúkdóm sem olli mæðiveikinni og einnig þurramæðinni.