Oddi á Rangárvöllum

Þættir úr sögu höfuðbóls

Forsíða kápu bókarinnar

Oddi á Rangárvöllum var miðstöð valda, kirkju og lærdóms undir forystu Oddaverja á 12. og 13. öld. Í bókinni eru aðgengilegar og ríkulega myndskreyttar greinar eftir fjölda höfunda, byggðar á Oddarannsókninni 2020–24 um samfélag, menntir og ritmenningu í Odda á miðöldum og undirstöður hennar.

Hið forna höfuðból Oddi á Rangárvöllum á sér langa og merka sögu en frægðarsól þess reis hæst á tímabilinu 1100–1300 undir stjórn Oddaverja þegar staðurinn var miðstöð valda, kirkju og lærdóms. Ritmenning var mikilvægur hluti af höfðingjamenningu miðalda og létu hinir nafntoguðu Oddaverjar ekki sitt eftir liggja. Framlag þeirra til ritmenningar og lærdóms var viðfangsefni Oddarannsóknarinnar á árunum 2020–24 sem styrkt var af verkefninu Ritmenning íslenskra miðalda (RÍM). Í bókinni er safn aðgengilegra greina sem byggja á niðurstöðum rannsóknarinnar og fjalla um íslenskt miðaldasamfélag, menn, menntir og bókmenningu í Odda, en einnig umhverfi og efnahagslegar undirstöður ritmenningar.

Listi yfir höfunda:

Ágúst Sigurðsson

Ármann Jakobsson

Árni Freyr Magnússon

Árni Pétur Árnason

Ásdís Egilsdóttir

Auður G. Magnúsdóttir

Chris Callow

Egill Erlendsson

Guðrún Harðardóttir

Gunnar Harðarson

Halldís Ármannsdóttir

Helga Vollertsen

Helgi Þorláksson

Joe Wallace Walser

Jón Viðar Sigurðsson

Kristborg Þórsdóttir

Margaret Cormack

Miguel Andrade

Oddur Pálsson

Richard North

Sigurlaugur Ingólfsson

Sverrir Jakobsson

Viðar Pálsson