Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Ókyrrð

Leikrit

  • Höfundur Brynja Hjálmsdóttir
Forsíða bókarinnar

Ókyrrð er gamanleikur um háska í háloftunum. Leikritið gerist í flugvél á tímum heimsfaraldurs og hverfist um fjórar persónur sem allar stefna í ólíkar áttir. Það er ókyrrð í lofti í þessu ærslafulla verki sem fjallar um þrána eftir jafnvægi og óuppfylltar óskir um að hafa stjórn á eigin tilveru, í heimi þar sem ekkert lætur að stjórn.

Verðlaunaskáldið Brynja Hjálmsdóttir vakti mikla athygli fyrir ljóðabækurnar Okfruman (2019) og Kona lítur við (2021). Hún hefur verið tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og Maístjörnunnar og hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör 2022.