Öld ímyndunaraflsins
Hugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina. Bergur Ebbi skrifar af smitandi eldmóði, skynsemi og þekkingu um heitasta málefni samtímans, gervigreind, og leitast við að útskýra hvers vegna hún er annað og meira en tækninýjung. Persónuleg og brýn skrif, óður til skapandi hugsunar, töfra tungumálsins og alls þess sem gefur lífinu gildi.