Ópera – Á ferðalagi um sögu listformsins
Óperuheimurinn er mörgum hulinn en hér eru lesendur leiddir með aðgengilegum hætti í gegnum sögu óperunnar, allt frá Monteverdi til Brittens, þar á meðal með um 130 tóndæmum.
Hér fylgir höfundur eftir bókin Klassísk tónlist – Á ferðalagi um tónlistarsöguna (2024) sem vakti mikla athygli. Í Ópera – Á ferðalagi um sögu listformsins er tilurð óperunnar rakin með fróðlegum hætti allt frá því að formið kom fyrst fram í kringum aldamótin 1600 og fram á 21. öld. Sagt er frá tugum tónskálda, þar á meðal þekktum höfundum á borð við Händel, Mozart, Rossini, Verdi, Wagner og Puccini auk annarra tónskálda sem mörg hver eru minna þekkt. Bókin hefur einnig að geyma á annað hundrað tóndæmi sem hægt er að hlýða á samhliða lestri.