Pár Guðs
Finnur Magnússon lifir spennandi tíma og er frægastur Íslendinga á sinni tíð fyrir vísindastörf sín. Frægðarsól hans rís hátt en hrapar hraðar en nokkur halastjarna er hann ræður rúnagátuna miklu í Blekinge í Svíþjóð og skrifar þykka bók um það forna letur – sem reynist svo ekki annað en jökulristur á veðraðri klöpp.

Inn í sögu Finns fléttast stórundarleg örlög Þórdísar Guðmundsdóttur, sveitastúlku sem dæmd er til ævilangrar þrælkunar í Spunahúsinu illræmda. En yfir öllum svífur andi Kaupmannahafnar jafnt: Íslendingunum, hórunum í Ulkegade, kónginum og kettinum Bruggara.