Passíusálmar
Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju kemur út ný útgáfa Passíusálma. Hún byggir á útgáfu Sigurbjörns Einarssonar biskups frá árinu 1991 og birtast sálmarnir ásamt píslarsögunni, orðskýringum, skrám um ritningarstaði og upphafi allra versa. Einnig eru tilgreinar allar prentanir Passíusálmanna frá upphafi.