Prettir í paradís
Anna hafði ekki hitt fyrrverandi eiginmann sinn í þrjú ár þegar hann bankar upp á í litlu leiguholunni hennar og vill fá hana með sér í fjölskyldubrúðkaup á paradísareyju. Fjölskylda hans heldur að þau séu enn gift, sem skiptir máli vegna skilmála í erfðaskrá afa hans. Anna yrði á launum og hana vantar pening - hvað gæti mögulega farið úrskeiðis?
Anna og Liam giftu sig bara til þess að eiga kost á ódýrri stúdentaíbúð og þekkjast í raun ekki neitt. Daginn sem Liam birtist svo aftur uppgötvar Anna að hún ætti að lesa betur skjölin sem hún undirritar. Skilnaðarpappírarnir voru alls engir skilnaðarpappírar - þau Liam eru enn gift. Og það sem er meira er: Liam er ekki fátækur námsmaður heldur erfingi gríðarlegra auðæfa Weston- fjölskyldunnar. Eini gallinn er sá að vegna skilmála í erfðaskrá afa hans fær hann ekki arfinn nema hann eigi löggilt fimm ára hjónaband að baki. Og nú er hinn harðsvíraði faðir hans farinn að gruna þau Önnu um græsku.
Lausnin? Að Anna fylgi Liam í brúðkaup systur hans á paradísareyju og sannfæri fjölskylduna um að þau Liam séu yfir sig ástfangin hjón. Og að hún sé fáguð eiginkona milljarðamærings en ekki atvinnulaus listakona sem nýlega var rekin úr starfi í sjoppu fyrir að stela tyggjópakka.
Hvað gæti svo sem farið úrskeiðis?