Ræktaðu garðinn þinn

Sumarblóm, kryddjurtir, vorlaukar, haustlaukar

Forsíða kápu bókarinnar

Garðyrkju- og grasafræðingurinn Vilmundur Hansen leiðir lesendur út í garð og sýnir hvernig blóm, kryddjurtir og laukar þrífast best. Hann fjallar um val á plöntum, gróðursetningu og umhirðu og útskýrir hvaða aðstæður henta best í íslenskri veðráttu. „Afar kærkomin leiðsögn fyrir allt garðyrkjuáhugafólk.“ / Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur

Hér mætast fegurð og nytjar – vinsælar tegundir jafnt sem áhugaverðar plöntur sem vert er að gefa gaum.

Bókin er jafnt ætluð þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref og þeim sem hafa lengi haft fingurna í moldinni. Með skýrum og aðgengilegum leiðbeiningum sýnir Vilmundur að ræktun þarf hvorki að vera flókin né fullkomin – hún byrjar einfaldlega á því að gefa sér tíma, vinna með árstíðunum og leyfa garðinum að fylgja sínum takti.

Vilmundur Hansen hefur um árabil miðlað þekkingu sinni í bókum og fjölmiðlum. Von hans er að bókin veiti lesendum innblástur og sjálfstraust – og auki ánægjustundir í garðinum.

„Afar kærkomin leiðsögn fyrir allt garðyrkjuáhugafólk. Glæsileg bók sem mun lengi lýsa upp hillur íslenskra garðyrkjubókmennta.“ / Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur

„Virkilega vel unnin bók og bráðnauðsynleg fyrir allt garðyrkjuáhugafólk. Skemmtilegar frásagnir við hvert blóm, ásamt staðreyndum og fróðleik um ræktun plantananna.“ / Sædís Guðlaugsdóttir Garðplöntustöðinni Gleym-mér-ei í Borgarnesi.