Réttir á Íslandi

Forsíða kápu bókarinnar

Undanfarin ár hefur bókarhöfundur leitað uppi fornar og nýjar réttir um allt land, tekið af þeim myndir af mikilli fagmennsku og skráð staðsetningu þeirra með GPS-mælipunktum. Í þessari gullfallegu bók eru ljósmyndir af um 700 nafngreindum réttum og fylgir fróðlegur texti með 250 þeirra. Einstök bók fyrir alla sem unna íslenskri náttúru og sögu.