Réttir, fé og fjallskil í Dalvíkurbyggð
Nokkrar örsögur og fróðleiksmolar að auki
Sauðfjárbúskapur á Árskógsströnd, í Svarfaðardal, á Dalvík og Upsaströnd á tímabilinu 1875-2024, tvenn umdeild fjárskipti og smásögur úr mannlífi. Auk fjölmargra ljósmynda af nafngreindu fólki. Allt þetta gerir ritið sígilt og að stöðugri uppsprettu ánægju og fróðleiks
Vignir Sveinsson segir hér frá sauðfjárbúskap á Árskógsströnd, í Svarfaðardal, Dalvík og Upsaströnd á tímabilinu frá 1875 til 2024.
Fjallað er um smalamennsku, fjallskil og réttir. Fjárskiptin 1949-1951, riðuveikina og fjárskiptin 1988-1990. Brúun vatnsfalla og mikilvægi girðinga fyrir bændur.
Inn í frásögnina fléttar höfundur fróðleiksmolum og örsögum sem með öðru gera bókina framúrskarandi skemmtilega aflestrar.
Vel á þriðja hundrað ljósmynda, fjölmargar af nafnkenndu fólki í leik og starfi, auka mjög á heimildar- og skemmtigildi þessa rits.