Samræðusiðfræði

Forsíða kápu bókarinnar

Safn greina um siðferðilegt hlutverk samtala og rökræðu. Samræðuhugtakið er brotið til mergjar og rýnt í hugmyndir um efnið frá sjónarhól siðfræði, tilvistarstefnu og samfélagsheimspeki. Sýnt er fram á mikilvægi samtals og rökræðu á ólíkum sviðum mannlífsins, svo sem í menntun, stjórnmálum og heilbrigðisþjónustu.

Að mati höfundar hefur þróun undanfarna áratugi í stjórnmálum og menningu leitt til þess að brýnt sé að styrkja rökræðustoðir lýðræðissamfélagsins og gaumgæfa þýðingu samtalsins í mannlegum samskiptum.