Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Sjö manngerðir sem finna má í bókabúðum

Forsíða kápu bókarinnar

Í þessari bók reynir skoski fornbóksalinn Shaun Bythell að átta sig á fólkinu sem ratað hefur í búðina hans á langri bóksalaævi. Heilt yfir finnst honum að viðskiptavinina megi flokka í sjö ólíkar manngerðir. Hnyttnar og snjallar mannlýsingar fornbókasalans gera þessa litlu bók að einstökum skemmtilestri.

Bækur Shauns um lífið í fornbókabúðinni hans í Wigtown á Skotlandi hafa slegið í gegn víða um heim. Þar er brugðið upp lifandi myndum af daglegum gestum í bókabúðinni, skrýtna fólkinu sem vinnur þar, kettinum Kafteini og öllu amstrinu sem fylgir lífi fornbókasalans. Snjólaug Bragadóttir íslenskaði.

„Grátbroslegar lýsingar ... engum er hlíft.“ – Washington Post

„Fornbókasalinn lætur allt flakka með snilldarlegum hætti ... mannfyrirlitning í bland við elskulegheit.“ – Guardian