Skömmin var aldrei mín
Í þessari áhrifamiklu sjálfsævisögu rekur Hrund leið sína frá æsku, þar sem þögn, meðvirkni og áföll móta sjálfsmynd hennar, yfir í fullorðinsár þar sem hún byggir upp fjölskyldu, menntar sig og nær árangri – en ber um leið sívaxandi innri byrði.
Hvernig lærir barn að bera ábyrgð á því sem það réði aldrei við?
Hrund Ottósdóttir elst upp í Grindavík ásamt tvíburabróður sínum, Hafliða. Þau deila bernsku, sterkum tengslum og leyndarmálum þar til líf þeirra fara í ólíkar áttir. Á meðan Hrund reynir að halda öllu saman með dugnaði, fullkomnunaráráttu og ábyrgð, á Hafliði sífellt erfiðara með að fóta sig. Gjáin á milli þeirra breikkar – og enginn virðist sjá hvað býr að baki.
Þegar áfengið verður leið til að deyfa það sem aldrei fékk að heita sínu rétta nafni neyðist hún loks til að horfast í augu við sjálfa sig og fortíðina.
Skömmin var aldrei mín er opinská saga um fjölskyldubönd, áföll og ósýnileg mynstur sem geta fylgt fólki langt fram á fullorðinsár – og batann sem felst í að rjúfa vítahringinn, axla ábyrgð á eigin lífi og velja aðra leið.