Barnabók byggð á ACT Skýin í maganum

Forsíða kápu bókarinnar

Stundum skín sólin, stundum er skýjað og stundum geisar stormur innra með okkur.

Með fallegri myndrænni framsetningu hjálpa höfundar börnum að skilja að allar tilfinningar eiga rétt á sér. Rétt eins og við getum ekki stjórnað veðrinu getum við ekki stjórnað því hvernig okkur líður – en við getum lært að velja hvernig við bregðumst við.

Þessi bók aðstoðar foreldra að kenna börnum sínum vel rannsakaða leið til að auka sveigjanleika sinn gagnvart erfiðri líðan og hugsunum. Ef barn er þjálfað til að skilja og taka eftir krefjandi hugsunum og/eða tilfinningum myndast fjarlægð sem getur verið hjálpleg til að bregðast betur við. Markmiðið er ekki að erfið líðan hverfi heldur að við náum að ráða betur við hana. Við hjá “Sterkari út í lífið” mælum með þessari vel skrifuðu bók og bendum á fleiri verkefni á vefsíðunni sterkariutilifid.is”