Strákar sem meiða

Forsíða bókarinnar

Maður finnst myrtur í sumarbústað í Skorradal. Á veggnum fyrir ofan hann hafa verið skilin eftir blóðug skilaboð. Elma, sem aðdáendur Evu Bjargar þekkja úr fyrri bókum hennar, glímir hér við sérlega erfitt mál sem teygir anga sína víða um samfélagið og tugi ára aftur í tímann – ekki síst eftir að gömul dagbók ungs drengs finnst.

Strákar sem meiða eftir Evu Björgu Ægisdóttur var ein mest selda skáldsaga ársins 2023, hlaut einróma lof og var tilnefnd til Blóðdropans – Íslensku glæpsagnaverðlaunanna.

Eva Björg hefur á aðeins örfáum árum skipað sér í framvarðarsveit evrópskra glæpasagnahöfunda og hlotið verðlaun heima og erlendis fyrir bækur sínar.

„Enginn glæpasagnaunnandi verður svikinn af þessari nýjustu bók Evu Bjargar. Hún viðheldur allt fram á lokasíðurnar forvitni lesandans um lausn gátunnar og afdrif sögupersónanna og mun leggjast vel í þá sem hafa gaman af snörpum, norrænum reyfurum.“

Bára Huld Beck & Símon Vestarr, Stundinni

„... hlýtur að snerta hvern einasta lesanda ... vel skrifuð og athyglisverð, frásögnin spennandi ...“

Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu

„ ... gríðarlega spennandi og hélt bókin mér allan tímann ... stórkostlega vel gert ... Það er óhætt að segja að Eva Björg sé búin að skipa sér sess meðal okkar fremstu glæpasagnahöfunda.“

Jana Hjörvar, Lestrarklefinn.is

„Elma er er sérstaklega eftirminnileg og margbrotin persóna.“

Financial Times