Ljóðmæli Stúlka & Hagalagðar

Forsíða kápu bókarinnar

Júlíana Jónsdóttir var fyrst íslenskra kvenna til þess að fá gefna út bók eftir sig, ljóðabókina Stúlku sem kom út árið 1876. Í þessari 150 ára afmælisútgáfu koma báðar ljóðabækur Júlíönu út í einu bindi. Ljóðin bera aldurinn vel og vitna um leiftrandi gáfur, seiglu og skopskyn Júlíönu sem var vinnukona frá ungaaldri og hlaut litla skólagöngu.