Suðurríkjaherforingi frá Big Sur
Í þessari bráðfyndnu og furðulegu sögu slást lesendur í för með félögunum Jesse og Lee. Leið þeirra liggur frá hriplekum forstofum í San Francisco til klettaveggja Big Sur þar sem lífið snýst um froskakvak, vináttu, ódýr vín, blekkingar, hamingju og leitina eilífu að tilgangi lífsins.
Suðurríkjaherforingi frá Big Sur var fyrsta skáldsaga stílsnillingsins Richard Brautigan og er löngu orðið klassískt verk í bandarískum nútímabókmenntum.
Bandaríski rithöfundurinn Richard Brautigan (1935–1984) ólst upp við sára fátækt í Oregon-ríki á vesturströnd Bandaríkjanna. Um tvítugt fluttist hann til San Francisco þar sem hann bjó lengst af ævinni. Þar hóf hann höfundarferil sinn með ljóðagerð. Bækur hans fengu litla athygli þar til Silungsveiði í Ameríku kom út árið 1967. Sú bók sló rækilega í gegn og hefur selst í yfir 4 milljónum eintaka. Tókýó-Montana hraðlestin eftir Brautigan sem kom út í íslenskri þýðingu árið 2024.
Þýðandi bókarinnar, Þórður Sævar Jónsson (f. 1989, hefur sent frá sér fjórar ljóðabækur – Vellankötlu (tilnefnd til Maístjörnunnar), Blágil, Brunagadd og Heimkynni – og eitt smáprósasafn, 49 kílómetrar er uppáhalds vegalengdin mín. Hann hefur áður þýtt fimm skáldverk eftir Richard Brautigan auk sögu eftir Lúkíanos frá Samósata úr forngrísku. Þá var Þórður einn af yfirritstjórum meðgönguljóðaseríunnar á árunum 2016–2018.
„Stíll hans og vitsmunir miðla svo mikilli orku að ... Brautigan ... fær öll skilningarvitin til að anda.“
Newsweek
„Heillandi, pirrandi og hræðilega fyndin bók.“
San Francisco Chronicle
„Ótrúleg saga ... Þú verður sáttari við heiminn eftir að hafa lesið hana.“
Los Angeles Examiner