Svavar Guðnason
Litróf birtunnar – um list brautryðjanda
Svavar Guðnason kom eins og stormsveipur inn í íslenskt listalíf í ágúst 1945 eftir langa dvöl í Danmörku með sýningu sinni í Listamannaskálanum. Þar ruddi hann óhlutbundinni myndlist braut á Íslandi. Svavar átti einnig þátt í því að móta danska – og evrópska – listasögu með hópnum er síðar varð þekktur sem Cobra-hreyfingin.
Í þessari glæsilegu bók gerir aðalhöfundur hennar, Anna Jóhannsdóttir listfræðingur og myndlistarmaður, grein fyrir ferli Svavars en danski listfræðingurinn Jens Tang Kristensen fjallar um Svavar sem „alþjóðlegan íslenskan meistara“. Hér er á ferð einstakur minnisvarði um einn merkasta fulltrúa íslenskrar menningar heima og erlendis, fyrr og síðar. Bókinni fylgja sérprent af fimm málverkum Svavars. Hún kemur bæði út í íslenskri og enskri útgáfu. Bókin kemur einnig út á ensku.