Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Takk fyrir að hlusta

Forsíða kápu bókarinnar

Sewanee Chester þarf að gefa drauma sína um frama í Hollywood upp á bátinn þegar hún lendir í hræðilegu slysi. Hún er þó sátt við nýjan frama sem hljóðbókalesari, ekki fyrir framan myndavélarnar. Einn vinsælasti ástarsagnahöfundur heims vill að hún lesi síðustu bók sína á móti Brock McNight, allra heitustu rödd bransans.

Sewanee samþykkir með semingi, enda löngu hætt að lesa inn ástarsögur þar sem hún hefur ekki áhuga á að selja tálsýnir og drauma sem geta ekki ræst.

Þau Brock vinna bæði undir dulnefni, hvort í sínu landinu og í skjóli nafnleysis mynda þau óvænt og náin tengsl. Bæði leggja metnað í að skila góðu verki og eru því í miklum samskiptum. Og múrarnir sem Sewanee hefur byggt um hjarta sitt taka að brotna niður, hver af öðrum.