Það sem eftir er

Forsíða kápu bókarinnar

Hjartnæm metsölubók um lífið eins og það er. Jeanne er ekkja í rándýrri Parísaríbúð. Theó eyðir órólegum nóttum í neðanjarðarlestinni eða í bílflaki. Ótraust húsnæði og illa launað starf eru nýr veruleiki Irisar. Þegar Jeanne ákveður að leigja þeim herbergi bætir hún ekki aðeins eigin fjárhag, heldur veitir þeim einnig betra líf.

Áhrifamikil saga skrifuð af næmni um lífið eins og það er – brothætt og fyndið, hugljúft og átakanlegt og fullt af óvæntum augnablikum.

Virginie Grimaldi er einn mest lesni höfundur Frakklands og skáldsögur hennar hafa verið þýddar á yfir 20 tungumál.

Guðrún Vilmundardóttir þýðir úr frönsku.