Þegar fylgdarskipið fórst

Strand herskipsins Gautaborgar á Hraunsskeiði 1718, aðdragandi og afleiðingar

Forsíða kápu bókarinnar

Árið 1718 hafði ríki Danakonungs, og þar með Ísland, átt í stríði við Svíþjóð í níu ár og sá ekki fyrir endann á þeim ófriði. Kaupskip fengu herskipafylgd á siglingu milli Kaupmannahafnar og Íslands. Í nóvember 1718 strandaði og fórst fylgdarskipið Gautaborg (Giötheborg) úr flota Danakonungs á Hraunsskeiði austan við Þorlákshöfn.

Yfirvöld á Íslandi fengu þar aðkallandi og erfið verkefni, en það þyngsta var að taka á móti 174 skipbrotsmönnum og sjá þeim farborða, þar til unnt var að senda þá til baka til Danmerkur nærri ári eftir strandið. Hér er sagt frá því stjórnsýslulega afreki, sem yfirvöld hér á landi unnu þá í samvinnu við skipverja og á þriðja hundrað bændur.