Höfundur: Halldór Baldursson

Þegar fylgdarskipið fórst

Strand herskipsins Gautaborgar á Hraunsskeiði 1718, aðdragandi og afleiðingar

Árið 1718 hafði ríki Danakonungs, og þar með Ísland, átt í stríði við Svíþjóð í níu ár og sá ekki fyrir endann á þeim ófriði. Kaupskip fengu herskipafylgd á siglingu milli Kaupmannahafnar og Íslands. Í nóvember 1718 strandaði og fórst fylgdarskipið Gautaborg (Giötheborg) úr flota Danakonungs á Hraunsskeiði austan við Þorlákshöfn.