Þín fornaldar frægð

Það sem höfundar Landnámu töldu rétt vera

Forsíða kápu bókarinnar

Illugi Jökulsson skoðar hér hvaðan landnámsfólkið kom, samkvæmt Landnámu, og athugar stöðu þræla, gerð bæja, skipakostinn, yfirráð norrænna manna á Bretlandseyjum og fleira.

Fræðimenn hafa fyrir löngu áttað sig á að heimildagildi Landnámu er ekki jafn mikið og eitt sinn var talið.

En hvaða mynd er teiknuð upp í bókinni af feðrunum frægu (og einstaka móður)?

Lýsir hún í raun og veru frjálsræðis hetjunum góðu sem hér settust að í blómguðu dalanna skauti, ukust að íþrótt og frægð og undu svo glaðir við sitt?

Aðallega birtir hann þó og tekur saman frásagnir Landnámu um það landnámsfólk sem er meira en nafnið tómt.

Og sú mynd sem Landnámuhöfundar draga upp af landnámsfólki og samfélagi þess mun koma ýmsum í opna skjöldu.

Stórfróðleg bók og skemmtileg.