Thorsararnir

Auður - völd - örlög

Forsíða kápu bókarinnar

Í augum danska búðarsveinsins Thors Jensen var Ísland land tækifæranna. Eftir að hafa þreifað fyrir sér í verslun sannfærðist hann um að framtíðin lægi í íslenskri stórútgerð. Í félagi við syni sína stofnaði hann togarafélagið Kveldúlf og lagði þar með hornstein að einu mesta ættarveldi landsins – veldi Thorsaranna. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda.

Á blómatíma ættarinnar voru umsvif Thorsaranna mikil og þræðirnir lágu víða – í sjávarútvegi, landbúnaði, utanríkisviðskiptum og æðstu stjórn landsins.

Thorsararnir bárust á í einkalífinu og þeir eignuðust óvildarmenn sem áttu þann draum æðstan að ganga á milli bols og höfuðs á þeim. Undir niðri kraumuðu ýmis fjölskylduleyndarmál.

Saga Thorsaranna er saga mikils auðs og mikilla 'hrifa en ekki síst mikilla örlaga.