Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Þriðja augað

  • Höfundur Guðni Reynir Þorbjörnsson
Forsíða kápu bókarinnar

Þegar miðill fylgir óhugnalegu hugboði sínu að afskekktum sveitabæ, bíða leyndarmál fortíðarinnar þess að komast upp á yfirborðið - með ófyrirséðum afleiðingum.

Rósa starfar sem miðill í Reykjavík. Á köldum vetrardegi í desember fær hún til sín viðskiptavin en honum fylgir lítill drengur sem vekur óhug.

Hver var drengurinn og hvað vill hann segja henni?

Spurningarnar leiða hana að afskekktum sveitabæ á Snæfellsnesi þar sem mæðgur létu lífið þegar þær köstuðu sér fram af fossi fyrir ofan bæjarstæðið og ekki er allt sem sýnist.

Eftir því sem Rósa nálgast sannleikann, þrengir hringurinn að - og hún áttar sig á að sumir andar leita ekki friðar... heldur réttlætis.