Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Þú sem ert á jörðu

  • Höfundur Nína Ólafsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Í þessari mögnuðu skáldsögu fylgjum við lífshlaupi konu sem elst upp á heimskautasvæði á tímum mikilla umhverfis- og samfélagsbreytinga. Líf hennar tekur stakkaskiptum og hún flækist inn í atburðarás sem flytur hana yfir heimshöfin.

Á einmanalegri ferð sinni um ólík vistkerfi sér hún gjörbreyttan heim og rifjar upp örlög horfinna ástvina, sem og heimsins sem hún kveður.

Þú sem ert á jörðu er hugleiðing um hamfarahlýnun, útdauða og mannmiðaða sýn á veröldina. Hér er maðurinn ekki guð heldur tilheyrir náttúrunni og er jafn háður kenjum hennar og aðrar lífverur á jörðinni.